Skilmálar

Almennt

Somnus ehf. kt. 440121-0980, sem rekur Woolroom.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.

Afhending vöru

Framleiðsluferli og afhendingartími er 6-8 vikur.

Hægt er að fá vöruna í verslun okkar í Síðumúla 21, Selmúla. Ef varan hefur verið greidd fyrirfram þarf að framvísa greiðslukvittun eða persónuskilríki. Velji kaupandi að fá vöruna senda verður hún send með Íslandspósti eða Landflutningum. Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða allar pantanir sem berast fyrir kl 13 samdægurs, annars næsta virka dag eftir pöntun. Varðandi allar pantanir sem sendar eru með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar-, og flutningsskilmálar Íslandspóst Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Somnus ehf ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vörunni við flutning eftir að vörunni hefur verið komið til Íslandspóst.

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin, hér má lesa upplýsingar um skilareglur Woolroom.is

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og allur kostnaður sem kann að koma til vegna flutnings og fl. er greiddur af Woolroom.is

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í verslun Woolroom.is ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld

Öll verð í vefverslun Woolroom.is eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sendingarkostnaður

Woolroom.is sendir mjúkvörur án endurgjalds um land allt. Sendingarkostnaður við dýnur er 10.000 kr. ef sent er á suðvesturhornið en 20.000 kr. sé sent utan þess svæðis.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Notkun á persónuupplýsingum

Allar upplýsingar sem kaupandi kann að skrá við kaup í vefverslun Woolroom.is eru aldrei afhentar þriðja aðila.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað.